Fréttir
08.10.2011

Hæ hæ, Verzlunarskólinn er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli á vegum Landlæknisembættisins og fimmtudaginn 20.okt. mun það formlega vera sett á laggirnar í skólanum. Af því tilefni verður uppákoma í Bláa sal og á Marmara í síðustu kennslustund fyrir hádegishlé. Hingað mæta góðir gestir, tónlistaratriði verður frá nemendum og heilsusamlegt snarl á boðstólum. Sjáumst öll í Bláa sal næsta fimmtudag! Hanna Lilja Jóhannsdóttir, Náms- og starfsráðgjafi Verzlunarskóli Íslands

06.10.2011

Kæru Verzló refir og tófur. Næsta vika (10.-13. okt) einkennist af hreinum UNAÐI og sælu þegar nokkrar af þekktustu hljómsveitum allra tíma stíga á stokk á Marmaranum. Við erum að tala um Led Zeppelin, Alice Cooper, ZZ Top, Britney Spears og Rebeccu Black. Þau ætla að trylla lýðinn í fimm mínútna hléum og eftir skóla. Nýtið tækifærið og upplifið þessa einstöku viðburði og munið að það skemmir ekki að skola tónlistinni niður með nóg af lýsi. Svo hefur heyrst að Spyrna muni bjóða upp á kaffi og kleinur á leynistað. F.h. Verzló Waves Daníel Kristjánsson, Formaður VW

05.10.2011

Myndirnar komnar inn og allt er að gerast...

26.09.2011

Blaaa Einn magnaðasti atburður skólaársins er í nánd og ég er að sjálfsögðu að tala um innanhúss mótið í knattspyrnu. Leikskipulagið er einfalt, þetta verður keppni á milli bekkja og verða bekkirnir að skrá sig á netfangið ithro@verslo.is en frestur rennur út til að skrá bekkinn sinn á fimmtudaginn 29. september kl. 12.01 og að sjálfsögðu er þetta að kostnaðarlausu. Verður hver bekkur þá að velja sína fulltrúa því hver bekkur getur aðeins skráð eitt lið til leiks. 5 leikmenn eru inn á í einu, 1 í búrinu (markinu) og restin eru væntanlega útispilarar, fjöldi á varamannabekknum er ótakmarkaður. Við hvetjum allar klappstýrur skólans til að koma og hvetja sinn bekk. Samkvæmt mínum heimildum verður tekið afar vægt á grófum brotum og kæmi mér ekki á óvart ef við fengjum að sjá mikið blóði, svita og jafnvel tárum. Leiktími er 7 mín. Þetta fer fram á vel völdnum laugardegi í október/nóvember og verður nánari dagsetning gefinn upp seinna. Spilað er í íþróttasal Verzlunarskólans. Úrslitaleikurinn verður haldinn við hátíðlega athöfn í hádegi á vel völdnum skóladegi. En allavega þeir bekkir sem ætla að taka þátt senda mail á ithro@verslo.is og segja nafn bekkjar sem ætlar að vera með og ekkert meira en það, ég bið ykkur að senda bara eitt mail frá hverjum bekk. Svo mætið þið á Marmarann á föstudaginn (30.sep) kl. 9.35 en þá ætlar konungleg Íþróttanefnd að draga í riðla í þessu æsispennandi móti. Ætla að setja upp draumaliðið mitt til að hita upp fyrir mótið og það myndi vera svona uppstillt: Jens Lehmann í markinu, Varnarmenn:Jesper Blomqvist og Jaap Stam. Sóknarmenn: Jan Koller og OLGA FÆRSETH. Varamannabekkur: Patrick Kluivert og Þorvaldur Einarsson Ef eitthverjar spurningar skyldu vakna sendið mail á ithro@verslo.is Fyrir hönd Íþróttafélags NFVÍ og FMos Hinrik Wöhler

26.09.2011

Kæri Verzlingur! Hefur þú skeggvöxt Wöhlersins?? Ertu með kökuskreytingar hæfileika?? Þá leitar Viljinn af þér! Þetta voru ekki einhverjar random spurningar heldur hefur Viljinn nú sett af stað bæði mottukeppni og kökuskreytingarkeppni og munu sigurvegararnir birtast í næsta tölublaði Viljans. Það sem ÞÚ kæri Verzlingur þarft að gera er að byrja að safna í hnausþykka mottu eða draga fram bakstursgræjurnar! Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þykkustu mottuna og flottustu hnallþóruna! Myndir af kökuskreytingunu þarf að senda á viljinn@verslo.is fyrir 1. nóvember. Keppendur geta nælt sér í nokkur auka stig ef þeir bjóða Viljanefndinni smakk af kökunni. Ekki skemmir heldur að hafa ískalt mjólkurglas með! Keppendur mottu keppninnar þurfa einungis að safna mottu til að skrá sig til keppnis. Hýjungur með maskara er nóg. Hvenær sem er fram að 1.nóv getur keppandi beðið um skoðun og myndatöku Úrslit verða tilkynnt í 2. tölublaði vetrarins Verið hress, ekkert stress! Viljinn

16.09.2011

Þann 2.september var haldið hátíðlegt TapasBars-Golfmót NFVÍ á Setbergsvelli. Þetta var vægast sagt flugeldasýning enda við engu öðru að búast þegar maður á borð við Þorvald Einarsson var meðal keppenda. Það var rjómablíða sem tók á móti okkur í Hafnarfirðinum og voru það Íris Katla og Hildur Kristín í 6-X sem hrepptu fyrsta sætið 5 höggum undir pari og fá þær stórkostleg verðlaun sem eru meðal annars: 10.000 kr. Gjafabréf á Tapas-Barnum, 7.500 kr. Inneign hjá GKG hvor, mánaðarbyrgðir af Corny, mánaðarkort í Sporthúsinu á manninn og glæsilegan bikar. Ekki langt eftir þeim í 2.sæti voru Gísli Viðar 5-X og Gísli Þór 5-I og geta þeir félagarnir fagnað því með að fara rómantíska ferð í Bláa Lónið með gjafabréf upp á 7.500 kr. hjá GKG í farteskinu. Myndarlegustu mennirnir á vellinum voru Rafn Erlingsson 6-B og Andri Sig 6-E en þeir voru uppáklæddir í unaðslegan rauðan samfesting og fá þeir vikuskammt af Corny og líka gjafabréf upp á 7.500 kr. hjá GKG hvor. Högg dagsins átti sér stað á 4.holu en það átti Anton Egilsson en hann var einungis nokkrum sentimetrum að fara holu í höggi en þrátt fyrir það átti hann ekki góðan dag og fór völlinn 17 höggum yfir pari. Allir skemmtu sér konunglega nema kannski þá vallarstjórinn á Setbergsvellinum en hann hafði í nógu snúast þennan dag. Fyrir hönd Íþróttafélags NFVÍ Hinrik Wöhler